» 3 hafa sagt sína skoðun
Hæ ég heiti Helena og ég held að allar hetjurnar séu búnar að gleyma þessari síðu. Stelpur ég legg til að við lífgum hana upp frá dauðum og förum að gera eitthvað í þessu. Ég er þegar byrjuð. Tékkið hetju mánaðarins. Kjárnafréttir og gullkorn.
Ég legg líka til að við hetjurnar förum nú að hittast svona allar saman í amstri dagsins. Kíkjum í Bláa Lónið eða eitthvað álíka. Nei okey þessi hugmynd kom ekki frá mér. Ólöf átti hana fyrirnokkrum dögum. En já ég er bara byrjuð í skólanum. Shit hvað það er mikið að gera orðið.
Hey ég er allt í einu orðin þreytt...
Pís át maaan.
» 2 hafa sagt sína skoðun
Hey vá hvað þessi síða er í góðu standi....Þetta var í rauninni kaldhæðni en nóóg um það...
Hey það var að koma inn enn einn fjölskyldumeðlimur í famílíunna mína fyrir nokkrum vikum síðan....Ég átti alltaf eftir að segja ykkur frá honum. Þessi meðlimur er ískápur...Sá gamli var víst orðin of ljótur fyrir mömmu þannig hún ákvað að sparka þessum ljóta og KAUPA sér eitt stykki nýjann í staðinn. Já það er auðvelt að vera manneskja. Hugsiði ykkur að geta gert þetta...Hent bara einhverjum úr fjölskyldunni þegar manni finnst hann vera orðin of ljótur til þess að geta sést á meðal almennings. Ég var gráti nær þegar þessi gamli hvarf á braut. En það er eitt sem ég mun ætíð vita og það er það að hann mun aldrei hvefa úr hjarta mínu...Litli, gamli ískápurinn sem lak svo mikið og söng svo fallega með ískri sínu á næturna....Þetta voru góðar tímar sem við áttum saman og mun ég svo sannarlega sakna hans! Vá það er erfitt að skrifa...Ég sakna hans svo mikið. Þessi nýji er ömurlegur...Hann gargar á nóttunni og hann er alltaf að reyna að svelta mann....Það er svo erfitt að opna hurðina hans og ég held að hann éti allan matinn frá okkur því hann er alltaf tómur. Ekki vissi ég að ískápar gætu verið svona grimmir...
Já ég er að ganga í gegnum erfitt tímabil....Grimma ískápatímabilið...En well ég hlýt að jafna mig einhverntímann...Ég er samt ekki búin að komast yfir ristavélina ennþá...Þessi nýja er svo feit og svo snobbuð að það liggur við maður æli þegar maður lítur á hana augum...
Ég held samt að ég ætti að leggja orð mín í belg núna...segir maður það ekki annars?!?!
AUÐUR ER KOMIN MEÐ
BÍLPRÓFIÐ SITT HÚN
ER SVO KLÁR.. TIL
HAMINGJU MEÐ ÞAÐ..
» 1 hafa sagt sína skoðun
ó mæ gad... ég fer ekki í verklega bílprófið fyrr enn 6.
september.. halló þá er afmælisdagurinn
minn búinn... ég á afmæli 4. sept.. ekki gaman.. enn ég er allavega búin að ná skriflega með einni og einni villu.. þannig að ég er hálfnuð með þetta drasl.. enn ég held að Ólöf og Auður fara ekki í skriflega fyrr enn 29. ágúst og ég veit ekki hvenær Helena ættlar að skella sér í það... enn við erum allavega allar að nálgast það..
» 4 hafa sagt sína skoðun
Bara óska fallegustu tvíburunum til hamingju með afmælið...
Sí jú gæs tú næt...yea...
Barbie dead kveður!
jahá það er bara allt að gerast á þessari síðu.. enn ég skal koma og bjarga henni með einu stuttu bloggi... úff ég er svo awesome...
enn það sem gerðist hjá mér í dag var það að ég fór út í sólbað með mömmu minni um hádegið og fór svo inn að horfa á neighbours og svo skelltum við okkur í sund með Hröbbu systir, Lísu og Róberti, börnunum hennar.. vorum þar í sólbaði í 2 tíma eða eitthvað og ég brann svona snyrtilega.. svaka flott sko.. enn svo fengum við okkur ís eftir sundið.. svo gott að fá sér ís annaðslagið... svo fórum við mamma og keyptum okkur í bakaríinu eitthvað gott og fórum svo heim og átum það ALLT... nene bara grín.. enn svo plataði ég hana með mér í kringluna til að kaupa kjól og ég var það að máta á fullu svona 10 kjóla eða eitthvað og mamma ákvað að láta mig fara aftur í þá suma til að sýna henni aftur... enn það var bara gaman.. enn svo fór ég bara heim og beint að máta þá aftur fyrir kellinguna og Einar.. ég fór heim með 2 kjóla, belti og einn bol.. svo kom Birna systir mömmu í heimsókn og þá þurfti ég að máta þá aftur... svo reyndi ég að finna eitthvað að gera og hringdi í hana Auði sætu til að tjekka a henni enn hún komst ekki út þannig að það datt uppfyrir.. svo um 11 þá var Hrannar búinn í bílskúrnum og þá fórum við heim til hans til að hann gæti farið í sturtu.. svo sit ég bara hér að bíða eftir að fara heim...
enn ég vona að þetta verði til þess að brjóta ísinn hjá okkur á meiri bloggum...
bæbæ Sibba
Jæja þá er líklega bara komið að mér að blogga held ég bara það er samt ekkert skemmtilegt að tala um
En Sigurbjörg kom með mér í vinnuna um daginn og það var bara mjög gaman hjá okkur Sigurbjörg ætlaði að fórna sér fyrir hrífuna og traktorinn.. góður vinnumaður maður hvað gerir maður ekki fyrir feita traktorinn okkar heitir feiti alltaf gaman í túnþökubransanum hehe en við vorum að leggja uppí Borganesi á golfvellinum þar
Svo er pabbi gamli bara sjónvarpsstjarna ásamt bróður mínum Halla já.. þeir komu í fréttunum á NFS og var verið að tala um túnþökuræktina okkar http://veftivi.visir.is/veftivi/main.do?treeId=1002&progId=20146&itemId=16808 hérna er fyrir áhugasama hehe
Já.. loksins í smá fríi í dag.. er búin að vinna klikkað mikið en reyndar lenti ég akkurat á tiltektartíma í fríinu mínu þannig að ég var fengin til þess að hjálpa
Svona er vélin okkar eins og ég sagði áðan.. fyrir þá sem hafa áhuga (sem er líklega enginn en jæja) nema okkar er traktor.. hann er með húsi ekki bara tjaldi yfir
Ég er bara out! Heimska Hetjan í lífi ykkar kveður að sinni.. eða bara Ólöf
þetta eru upplýsingarnar um námskeiðið sem ég fékk sendar..
Sæl Sigurbjörg Um er að ræða kennslu í svokallaðri static línu. Námskeiðið er byggt upp á bóklegri kennslu sem tekur 1 - 2 kvöld og síðan eru tekin 2 static línu stökk næstu helgi á eftir. Stokkið er úr 3.000-4.000 feta hæð með línu sem tengir fallhlífina við flugvélina. U.þ.b. 3 sekúndum eftir að þú sleppir takinu af vængstífunni er línan orðin strengd og hefst þá opnunarferli aðalfallhlífarinnar. Frá útstökki og til lendingar er flogið undir handleiðslu kennara á jörðu niðri sem heldur fullu sambandi við nemandann í gegnum talstöð. Lágmarksaldur til að læra fallhlífastökk er 18 ár eða 16 ár með skriflegu leyfi frá foreldrum. Innifalið í námskeiðsgjaldi er bókleg kennsla, kennslugögn, leiga á búnaði og 2 stökk undir handleiðslu stökkstjóra og kennara á jörðu niðri. Námskeiðsgjaldið er 29.900 kr. og greiðist fyrirfram. Áætlað er að næsta námskeið hefjist í 1. - 2. viku Júlí. Opnað hefur verið fyrir skráningar á námskeiðið en hægt er að svara þessum pósti eða hringja í mig í síma 860-5156. Með kveðju Hjörtur Blöndal S: 860-5156 Fallhlífaklúbbur Reykjavíkur
» 12 hafa sagt sína skoðun
Ekki segja mér það að það sé ekki svipur með mér og frænda mínum Geir H. Haarde.
Hér er ég og þessi við hliðina á mér er Geiri Gustur.
Já leiðir okkar virðast liggja saman. Mér og honum frænda mínum. Ég hef hitt hann samtals þrisvar sinnum og þá voru þessi þrjú skipti öll í fermingarveislum. Ein fermingarveislan var fermingarveislan mín og hinar tvær voru hjá frænkum mínum. Já ég og Geiri Karlinn erum ná skyld eins og sést á brosinu. Við virðumst líka hafa sömu áhugamál því eins og flestir vita þá er hann allur í stjórnmálum og jú ég hef líka, fyrir algjöra tilviljun svona mikinn áhuga á stjórnmálum líka...Þetta flæðir allt í blóðinu...Flæðir út um allt..ójá...
En já nóg um mig og frænda minn hann Geira...
» 5 hafa sagt sína skoðun
Hæ mér leiðist og ég ætla að blogga á síðuna. Hún er líka uppiskroppa um blogg þannig það er allt í lagi að skreyta hana með einu nettu bloggi frá mér svona stöku sinnum.
Já ég ætla að vera svo ótrúlega hamingjusöm að segja það fyrir hönd okkar hetjanna að við erum komnar í sumarfrí Reyndar á Ólöf eftir að taka líffræðiprófið í Júní og svo tek kég líka ábyggilega stærðfræðiprófið þá en það er allt annað mál. Þannig við skulum ekkert vera að nefna það meira. Það dregur okkur bara niður..aha já..svo sannarlega.
En já eins og flestir sem þekkja mig þá má ég ekki læra á þvottavél. Mamma mín vill greinilega ekki að ég fari að eyðileggja eitthvað þannig hún á það til að halda mig frá hlutum sem hún heldur að ég muni skemma eða eyðileggja. Tjah ég get kannski skilið það en samt. Það er kannski þess vegna að ég get ekki gert neitt. Ég get ekki kveikt á þvottavélini og hvað þá búið til mannlegan mat.
Já hún mamma mín er rosaleg og langar mig til þess að deila með ykkur því hvernig eldamennskan mín fór fram í dag. Eða þar sem ég geri góða tilraun til þess að reyna að elda mér í hádeiginu vegna ómögulegra leiðinda. Þið skiljið....Mér leiddist og það var leiðinlegt. Eeeen allavega ég kveikti á eldavélinni. Tjah ég er nýbúin að læra það..Það er svona sérstök barnalæsing á eldavélinni og þessi barnalæsing hefur haldið mig frá henni alla ævi þangað til fyrir nokkrum vikum að ég uppgvötaði röðina á aðgerðunum hvernig það átti að kveikja á blessaðari eldavélinni. Haha. En allavega ég kveikti á eldavélinni og setti bara á níu og setti síðan pönnuna á. Og trallala ég labbaði inn í herbergi og dundaði mér eitthvað í tölvunni þangað til ég fann geðveikt skrítna lykt...Svona brunalykt....Ég bara hmm...Ætli pannan sé ekki orðin nógu heit núna...Lala...Setti slatta af olíu á pönnuna og allt í einu bara skaust reykurinn upp úr..Ég sver það ég hef aldrei séð svona mikinn reyk í einu!... Eldhúsið og allt húsið var umvafið þykkum reyk..´Það var ekkert í stöðunni nema það að setja viftuna á eldavélinni í gang og vona það að reykskynjarinn myndi ekki drulla sér í gang. Hófst ég handa við að biðja til guðs og heilags Péturs Póstula og jú sú bæn rættist...Reykskynjarinn fór ekki í gang...En Olían...Hún varð brún og ógeðsleg en hey ég gafst ekki upp og setti eggin á pönnuna og byrjaði að elda gumsið...En svona til þess að stytta aðeins söguna...Þá varð þetta ógeðslegt...Ég borðaði þetta og hér sit ég með heiftarlegan verk í maga...Ég er vondur kokkur!
Sjáiði!
» 19 hafa sagt sína skoðun
hæhæ!
mér hafa borist nokkrar kvartanir yfir því að ég blogga ekki hérna þannig að.. hehe fyrirgefiði ég ætla að bæta úr þessu múahaha en já, því miður get ég ekki glatt ykkur með skemmtilegum sögum af buxunum sem að ég er í eða ömmu hrotudrottningu , og ég hef lítið um blessuð prófin að segja nema að mér finnst þau mega brenna í helvíti og að ég vona að sá sem fékk þessa snilldarflugu í höfuðið drukkni í vítislogum að eilífu. .......vá ég er farin að hljóma eins og madman ég er að missa það!!
en jæja ég held að þetta séi komið nóg af bulli í mér í bili
Auður - eina hetjan
Everyone, meet the hamburger baby.
» 13 hafa sagt sína skoðun